Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
04.12.2007 19:04:03 / Pointarinn-Páll

Árshátíð Borgarnesbasket

Já nú er komið að því drengir mínir... þetta verður svall...

Takið frá Laugardaginn 29 desember því hann verður ætlaður okkur í borgarnes basket!!!:klikk:

nánari auglýsing verður sett inn síðar, en eitt er víst að það verður matur og mjólk (fyrst það má ekki nefna bjór, úps) og djamm. 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.10.2007 19:20:04 / bibi fernandez

Rúnar fór á djammið

Jæja þá er kominn tími á nýja færslu inná þessa fornfrægu síðu. Gaman er að sjá að síðan fær ennþá sínar heimsóknir frá bloggþyrstum almúganum sem ennþá virðir þessa síðu fyrir sér í von um að nýtt blogg hafi fæðst. Þannig að ég hef ákveðið að skella inn nýrri færslu (maður verður að gefa fólkinu það sem það biður um). Af mér er mest lítið að frétta þar sem að lögfræðin á hug minn öllum stundum og hef ég sett inn umsókn um það að flytja lögheimili mitt á bókhlöðuna. Það eru ófáar klukkustundirnar sem að maður hefur setið þar í sveittum lestri yfir einhverjum lagadoðröntum.

Um dagin gerðist hins vegar sá fágæti atburður að maður skellti sér út á lífið og í ljósi atvika þessa afdrifaríka kvölds þá verður ekki djammað í einhvern tíma núna. Ég mun koma til með að rekja atburði kvöldsins en ég mun breyta öllum nöfnum til þess að þessir atburðir komi ekki til með að leiða til sakfellingar og fangelsis.

                                              

Kvöldið byrjaði rólega þar sem að samkunda var heima hjá Rúnari, viðstaddir voru ég, Rúnar, Rúnar, Rúnar og Rúnar. Eftir óhóflega drykkju og mikil dólgslæti var stefnan sett á miðbæin. Varla vorum við lagðir af stað þegar að Rúnar hófst handa við það að ganga og hlaupa yfir bíla á víxl. Eftir rólega ferð, ganga Rúnar og ég fram á stærðarinnar umferðarkeilu og auðvitað var umferðarkeilan tekin með í föruneytið. Samanstóð föruneytið þá af mér, 4 Rúnurum og einni stærðarinnar umferðarkeilu. Stuttu seinna kemur lögreglan og talar við Rúnar vegna þess að hann var með stóra umferðarkeilu á öxlinni, þar misstum við umferðarkeiluna og sáum hana aldrei aftur. Lögreglan átti eftir að vera gegnumgangadi þema þetta kvöldið. Því stuttu seinna tekur Rúnar upp á því að hlaupa yfir bíl beint fyrir framan tvo lögerglubíla. Rúnar fattar þetta og hleypur af stað í burtu, Rúnar ákveður að hlaupa með honum, en ég, Rúnar og Rúnar göngum áfram hinir spökustu. Það heppnaðist ekki betur en það að við vorum yfirheyrðir þarna í lengri tíma. Lögreglumaðurinn reyndi að hræða okkur með því að segja að við værum meðsekir en það heppnaðist ekki betur hjá honum en það að ég og Rúnar tilkynntum honum að við værum báðir í laganámi og þetta stæðist ekki hjá honum, stuttu seinna vorum við frjálsir ferða okkar. Afskipti lögreglunnar af okkur voru ekki búin. Þannig var það að Rúnar tók upp á því að slá belti sínu í bíl og upphófst þá mikill eltingarleikur milli Rúnars og einhvers dyravarðar. Ég og tveir Rúnarar tökum þá af stað og hlaupum á eftir Rúnari og dyraverðinum. Við gefumst þó fljótlega upp þar sem að við týndum þeim.

Stuttu seinna hittum við Rúnar þar sem að hann situr fyrir utan Hressó. Við spurðum hann hvort að hann hefði sloppið en Rúnar hélt nú aldeilis ekki. Þannig var það að dyravörðurinn náði honum og kallaði til lögregluna. Þegar lögreglan kom á vettvang stendur Rúnar upp og tilkynnir þeim hvað hann sé ánægður að sjá þá og segist vilja kæra dyravörðinn.

 Í dag er staðan þannig að einhversstaðar í dómskerfinu er mál Rúnars gegn dyraverðinum. Frekari frétta af málinu er ekki að vænta fyrr en við þingfestingu og bíða ég og Rúnararnir 4 spenntir eftir niðurstöðu þessa máls.

  

Rúnar bíður hinn spakasti eftir dómsuppkvaðningu
Bibi out

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 01:31:23 / Butcher Bill

meiðsli

Jæja það hefur verið lítið að gera hjá manni undanfarnar 4 vikur ekkert nema að horfa á dvd og spila NBA live 07 og náttúrulega spila manager með:) Ástæðan fyrir þessari "leti" hjá mér er sú að á æfingu fyrir já 4 vikum þá var ég að reyna að taka frákast vildi ekki svo skemmtilega til að ökklin á mér lenti einhvern veginn í elli undir mér og ég heyrði þetta skemmtilega brothljóð í löppini á mér ég bólgnaði dáldið en fór nú ekki til læknis fyrr en daginn eftir og þá kom í ljós eftir að læknirin var búinn að klípa í löppina og snúa henni og taka myndir þá tilkynnnti hann mér að það væri eitthvað bein í hælnum sem hefði brotnað frá hælnum, þegar ég skoðaði myndina af þessu broti þá fannst mér þetta frekar ómerkilegt en nei 4-6 vikur í gifsi eintóm hamingja hjá mér:) Loks þegar maður hélt að maður næði heilu tímabili án einhverja vandræða en þá gerist þetta og akkurat þegar nýji þjálfarinn var að fara að koma á klakan. Þetta er nú allt á réttri leið og vona ég að ég ná mér fljótt þar að seigja fyrr en læknirinn sagði fyrst!!!

En já ég hafði ekkert að gera þannig að ég ákvað að skrifa smá sjálfsvorkunar blogg hérna inná til að létta af sálini:)

Butcher Bill kveður


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2007 20:28:56 / bibi fernandez

Fortíðar þrá

Hvað varð um hina dýrlegu daga þegar að við hittumst allir og töluðum bara um bjór og tussur í stað þess að ræða vandræði heimsins og þvíumlíkt. Ég veit að ég sakna vitleysunnar i okkur og ég legg til að við förum í smá leiðangur í gegnum sálartetur okkar og spyrjum okkur að því hvort að við viljum frekar ræða á málefnalegum nótum eða getað endað hverja setningu með: Þegiðu homminn þinn! og fengið klapp fyrir. Ég sakna þess tíma er menn mættu með möllett, bólur, ótanaðir og hvaðeina og hvert sem farið var og hvað sem að gert var þá uppskar maður ávallt einhverja vitleysuna. Þó svo að menn hafi sett markið hærra hvort sem það er guðfræði, sagnfræði, lögfræði, hjálparstarf í latin-america, spænsku skóli í Barcelona eða bara það eitt að klára framhaldsskóla þá veit ég að það er ennþá pláss fyrir bull og vitleysu í hjarta ykkar drengir mínir og því bið ég ykkur um aðeins einn hlut og það er að opna hjarta ykkar og hleypa vitleysunni út á ný. Verið ekki feimnir svona erum við bara illa innrættir og hinir mestu drullusokkar. Það eina sem hægt er að bæta við þetta eru hin háfleygu orð: Ég er einsog ég er hvernig á ég að vera eitthvað annað?

 Ég veit að ég hef verið í skápnum og lengi og er tilbúinn að hleypa vitleysunni út á ný hvað með ykkur?

Bibi out


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 23:52:16 / Butcher Bill

Flottur Hörður

Já það er alveg rétt hjá þér Hörður þá held ég að við höfum allir þroskast og það á réttan veg:) Það er líka flott hjá gumma að nema guðfræði þá talar maður bara við hann þegar kemur að giftingu,skírn og fermingu;) Arnar á eftir að bræða dömurnar þegar hann kemur aftur frá Perú búinn að læra spænsku og þær eiga eftir að kolfalla fyrir honum!! Rúnar já ef þú værir í skólanum þá færi það ekki framhjá þér að hann er kongurinn í FVA og ég fer ekki ofan af því  að hann verður bæjarstjóri í stykkishólmi einn daginn og þá fórum við allir inní hólm til að taka einn körfubolta leik í hólminum;) Enn ég held að við séum allir að komast á mikla framabraut og að við verðum allir kóngar í ríki okkar;)  Já ég myndi ekki vilja missa af körfuboltanum í sumar en ég hef já hugsað mér að fara aftur í meistaraflokkin núna í haust og vonandi ná heilu tímabili ef ég meiðist ekki en eftir nærri árs frí er mig farið að klæja í puttana í að komast í körfuboltan og gera þetta af alvöru og ekkert old boys kjaftæði vona bara að Valur vilji fa mig. En að lokum þá vil ég óska Arnari góðs gengis í Perú og ég skal glaður koma og ná í hann ef hann lendir í fangelsi fyrir fyllerí á almannafæri

Slátarinn þakkar fyrir sig:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 22:42:14 / Pointarinn-Páll

Okay Þráinn

Ég hef ákveðið að taka Þráinn á orðinu og rita einhvað miður vitlegt hérna inn. Ég verð nú að viðurkenna það að ég hef ekki komið hérna inn lengi og það kom mér í raun mikið á óvart að fólk sé ennþá að tékka hvort við séum eitthvað að blogga. Nema þá að þetta séu einhverjar af "vinkonum" Arnars að leitast eftir myndum af honum, tel það mun líklegra.

 Ég kíkti þó hérna inn rétt eftir áramótin og fór að grúska í gömlum færslum frá árinu 2004 þegar að lífið snerist um fátt annað en körfubolta og bjór. Ekki það að lífið sé eitthvað mikið flóknara í dag en samt gaman að gleyma sér yfir þessari vitleysu sem að vall eitt sinn útúr okkur. Fínt líka að sjá þroskamuninn á okkur, hvernig við vorum þá og hvernig við erum í dag. Fyrir mína parta og vel flesta sem  að voru að skrifa hér inn verð ég að segja að við höfum nú allir (sem betur fer) þroskast upp úr kvenfyrirlitningunni og drykkjumennskunni sem að einkenndi okkur í gamla daga. Við erum nú samt ekkert orðnir neinir munkar í dag, ef undan er skilin Sr Guðsmundur sem að lætur vart frá ser Biblíuna þessa daganna. Það líður eflaust ekki á löngu þangað til að hann hættir að koma á djammið vegna aðkallandi erinda í kirkjunni, "Nei ég kemst ekki maður, ég er að fara að messa á morgun".

Einn er það þó sem að lítið hefur þroskast síðan í þá "gömlu góðu" daga. Ég held að það viti allir hvern ég er að tala um. Læt fylgja hér nokkur velvalin comment frá honum síðan í denn;

Uptown bill skrifaði
ég skrifaðu einu sinni á svar við einu verkefni mambó djambó...spurninginn var númer 14..


Uptown bill skrifaði
nei ekki of djúpt...bara of kerlinga legt
ps heiðar er með risa böll hhahaha


Uptown bill skrifaði

segðu ekki mikið það er ekki eins og þú hafir verið með stóran þegar þú varst lítill.hahhh..!!!!..þú þarna 0,5 blý tippi...

Alltaf sami gamli góði. Alltaf jafn gaman af honum.

Svona til að fara aðeins yfir hvað við erum að gera í dag til gamans.

Heiðar Lind er búsettur í Reykjavík og stundar nám við Háskóla Íslands. Hann stundar þar nám í sagnfræði auk þess að spila körfubolta með KR alveg þangað til hann sleit krossbönd fyrir nokkrum vikum síðan. Heiðar er enn á markaðnum og er almennt talinn einn eftirsóttasti piparsveinn Reykjavíkur.

Arnar Þór er útskrifaður!! Hann býr enn í Borgarnesi og er að vinna hjá pabba sínum, hann er þessa daganna að undirbúa langferð til Perú þar sem hann mun nema spænsku auk þess að hjálpa innfæddum með hin ýmsu vandamál. Hans verður sárt saknað. Ég er viss um samt sem áður að það kemur glænýr Arnar Þór heim. Arnar er enn á lausu en sífelldar 2k7 hótanir um að slá sér upp með systur eins vinar síns benda til þess að það verði ekki lengi.

Guðsmundur býr í Reykjavík ásamt Heiðari. Þeir leigja saman íbúð á Kaplaskjólsveginum og gengur sambúðin misjafnlega vel. Það er alveg kostulegt að fylgjast með þrefinu í þeim og höfum við vinirnir oft skemmt okkur konunglega heima hjá þeim hlustandi á þá rífast um hvor pissar hærra. Guðmundur er í Háskóla Íslands, í guðfræðideildinni. Hann er aðalposturinn í hinni feykna öflugu stúdentakörfu og þverneitar fyrir að það sé einhver bumbubolti.  Hann á kærustu, hina yndisfríðu Hófý sem hefur alveg smellpassað inn í vinahópinn og er hvers manns hugljúfi.

Bjarni Hlíðkvist er einnig útskrifaður og býr núna í bænum og er að vinna þar. Hann var að spila fótbolta með Skallagrím seinast sumar og æfði líka körfubolta þar fyrir áramót við góðan orðstír. Eftir því sem ég best veit er hann að skipta yfir í Hauka í fótboltanum og verður með þeim í sumar.

Rúnar Óla. Hvað er hægt að segja um hann. Hann er konungur FVA núna eftir að Arnar lét af störfum, gjaldkeri Nemandafélagsins og sérlegur verndari busanna eftir því sem ég best veit. Hann er einnig formaður ungra Sjálfstæðismanna á Vesturlandi. Það gerist fátt á Akranesi án þess að það fari í gegnum þennan mann fyrst. Rúnar er því miður búinn að leggja körfuboltaskóna á hilluna í bili. Rúnar er samt sem áður alltaf sami brúnksturinn. Rúnar er ekki við kvenmann kenndur.

Svanberg er einnig í FVA og er að klára stúdentinn. Hann er fastagestur í Mími og er þar hæstráðandi að ég hygg. Svanberg er einnig duglegur að mæta á leiki þar sem hann á það til að missa sig í æsingnum, BOOOOORGARNEEEES! Svanberg er enn á lausu.

Þrándurinn er í skólanum á Skaganum og tröllríður þar öllu á vistinni, hann er það allsráðandi og sér um að allt fari þar vel fram. Hann mætir alltaf á leiki í Nesinu og eitthvað var hann að sprikla með Old Boys um daginn. Það er spurning hvort að hann muni sjást á vellinum bráðlega. Hann mun allavega verða regular í streetballinu í sumar.

Geir er einhvers staðar út á landi. Poppar upp með reglulegu millibili og óhæfilegum fyrirvara. Meistari.

Áskell er á Selfossi að klára skólann. Er að spila þar með hinu magnaða liði FSU. Þeir eru að meika það í 1.deildinni og eru held ég barasta á leiðinni upp. Áskell er nú viðriðinn einhver smygl á hvítu dufti og reynir eftir því sem hann best getur að fá mig til liðs við sig. Eitthvað var hann að tala um að flytjast til LA í sumar og hefja þar líf sem Barón. Svo ekkert misskiljist þá er þetta einhvers konar fæðubótarefni. Áskell er eftir því sem ég best veit ennþá einhleypur. 

Sjálfur er ég að klára þetta blessaða stúdentpróf í fjarnámi, er að vinna með því sem blaðamaður á Skessuhorninu og er það alveg toppvinna. Stefni á að vera þar í sumar og svo mun ég halda út í háskólanám líklegast eftir áramótin næstu. Það er allavega stefnan. Ég er aðeins að sprikla í körfubolta með Sindra á Hornafirði þar sem ég var fyrir áramót. Vinur minn úr Borgarfirðinum er þar við stjórnvölinn og erum við á hraðri leið upp um deild. Úrslitakeppnin verður á Akranesi 30mars-1apríl. Ég gat heldur ekki haldist einhleypur lengi, er kominn með frábæra kærustu sem að heitir Ester Harpa og býr á Hvanneyri.

Er þetta bara komið gott! Næsti pistill eftir 1 ár, er það ekki bara?

Takk fyrir mig

Hörður Unnsteinsson  (hu)

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 22:23:32 / Butcher Bill

Pæling

Hérna ég fór aðeins að spá afhverju við erum hættir að blogga hérna inná þessa blessuðu síðu okkar, ok liðið sem við vorum í er ekkert lengur en við samt höldum góðum vinaböndum ennþá og þess vegna sé ég enga fyrirstöðu fyrir því aðhverju við ættum ekki að halda áfram að setja hugsanir okkar hérna inn á síðuna því að ég kem alltaf inn á þessa síðu í svokallaða bloggrúnt mínum og það er alltaf fullt af heimsóknum inná henni nánast á hverjum degi og því hvet ég félaga mína að blogga um hugsanir sínar hérna inná því það er alltaf gaman að sjá hvað vinir sínir eru að bralla, þó þetta sé ekki nema fyrir okkur sjálfa því við erum núna tvist og bast um landið og því ekki auðvelt að hitta á ykkur drengir:( Ég reyndar veit að ég var ekki sá duglegasti að blogga inná þetta en það myndi nú rætast úr því fyrst maður er ekki að vinna og er bara chillinu í skólanum:) því hvet ég ykkur hér með að blogga hérna inná því það eru greinilega einhverjir sem koma hérna inn ennþá:o

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 01:38:31 / Pointarinn-Páll

Blogg man

Heyrðu ég er kominn með blogg að austan (já það eru tölvur hérna). Slóðin er horduru.bloggar.is   Er ósköp fátæklegt í augnablikinu en þetta fer að batna. Tjékkið endilega á þessu!

 

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 17:24:23 / Pointarinn-Páll

Lokapistilinn

Godan daginn kaeru lesendur. Eg skil ekkert i tessu blogleysi okkar, tessi loford foru vist fyrir litid hja mer. Adeins annar pistilinn sem eg kem mer til ad skrifa. Nu erum vid staddir a Spani eftir langt og strangt ferdalag og eg aetla svona ad stikla a storu um tad sem gerst hefur sidan eg skrifadi seinast. Vona a minnid bregdist mer ekki. Svo koma svona myndir inna milli lika. :)   Hordur og Heidar i Mostar i Bosniu

Fra Skopje heldum vid aleidis til Athenu i Grikklandi en turftum sokum lestarseinkanna ad hafa naeturstad a lestarstodinni i Thessaloninku. Vid komumst loks til Athenu eftir skelfilega lestarferd og vid gistum tar i 2 naetur. Tad sem einkenndi ta dvol einna helst var su gifurlega hitabylgja sem ad reid yfir borgina akkurat tessa tvo daga sem vid vorum tar. Hitinn for alveg uppi 50 stig eins og kom fram a sidunni hans Gumma og thad var alveg obaerilegt. Serstaklega i oloftkaeldu hotelherbergi. Naeturnar 2 tarna voru skelfilegar. Vid letum samt hitann ekki hafa of mikil ahrif a okkur og skodudum borgina til trautar.

Fra Athenu sigldum vid svo til Bari a Italiu og batsferdin var hin agaetasta. Staerdarinnar fley med sundlaug og fullt af borum. Eina vesenid var ad tad var takmarkad plass til ad legga sig. Vid nadum ta ad koma okkur fyrir i einhverju skumaskoti og svafum bara vel. Tegar vid komum til Bari undir morgun tokum vid okkur strax lest til Rom med sma pissustoppi i Foggia. Rom var otruleg ad vanda og vid nadum ad skoda mikid og syna Heidari sem mest af borginn en tetta var hans fyrsta ferd tangad. Nadum meira ad segja annari messu i Peturskirkjunni sem var otrulegt og jafnvel mikilfenglegra en i fyrra. Fra Rom forum vid til Florens tar sem vid hofdum aetlad okkur ad eyda eftirmiddegi en tad breyttist to adeins tar sem bakpokarnir okkar laestust inni a lestarstodinni um nottina. Vid turftum tvi ad gista enn og aftur fyrir utan einhverja sodalega lestarstod. Daginn eftir forum vid til Cannes med smastoppi i Pisa og Torino. Vid gistum i Cannes i 2 naetur og su borg var an efa su dyrasta sem eg hef komid til. Komumst tar adeins a strondina og svomludum adeins i sjonum. Rakumst svo fyrir algera tilviljun a Alonzo Mourning midherja Miami Heat. Hann var svalur. 

I Frankfurt

Hordur i Hratvosku ongstraeti

Fra Cannes forum vid med naeturlest til Barcelona a Spani. I tessari lest voru veikindi Gumma farin ad gera vart vid sig. Hann svaf litid tessa nott og daginn eftir tegar vid nadum ad koma okkur inna hostel eftir mikla svadilfor um funheitt metrokrefi Barcelona borgar lagdist hann nidur til hvilu og la tar i einhverju hitamoki allan daginn med mikil oradi og medfylgjandi ofskynjanir. Tegar eg og Heidar komum heim um kvoldid eftir godan dag i Barcelona var Gummi eins og hafrekid sprek a annarlegri strond. Solin um daginn og lestarferdin um nottina hofdu farid hrikalega med karlgreyid. Hitinn i herberginu var einnig obaerilegur og Gummi greinilega ekki med ollu rettu. Tad fyrsta sem Gummi tjadi mer var tad ad hann hefdi flogid til Kina og skrifad doktorsritgerd um Schiller, eg spurdi hann undrandi hvort ad teir vissu mikid um Schiller i Kina og ta brast hann okvaedur vid og sagdi ad teir vissu vist mikid um Schiller i Kina og tad vaeri ekkert rett bara utaf tvi eg segdi tad. Hann sagdi okkur tad einnig ad hann hefdi talid um nottina ad hann vaeri i raun Saevar Eggertson en ekki Gudmundur Thorbjornsson. Vid vorum fljotir ad berja ta vitleysu ur honum. Ja svona geta veikindin farid illa i menn a ferdalogum. Hann braggadist to adeins daginn eftir og kom med okkur ut a gotur Barcelona tar sem vid nadum ad skoda okkur vel um. Forum og saum Nou Camp og svo Park Guelle. Daginn adur hofdum vid Heidar sed La sagrada Familia og styttuna af Kolumbus og svo einnig labbad Romluna ofaum sinnum. Vid skyldum tvi sattir vid Barcelona, Gummi var ordinn hress og vid forum nidur eftir strandlengjunni og stoppudum i 3 staerstu borg Spanar, Valencia. Vid gistum tar eina nott, gerdum ekki mikid tar annad en ad sofa og vera med laeti uppa hotelherbergi sem var an nokkurs vafa tad flottasta sem vid hofdum gist a.

godir i Split

Nu erum vid i Alicante a Spani. Bunir ad liggja a strondinni i allan dag og erum bara i tvi nuna ad taka tvi rolega. A morgun hefdi svo modir min saluga ordid 56 ara og aetlum vid ad minnast hennar a einhvern videigandi hatt. Sidan munum vid fljuga heim annad kvold og lendum a Islandi um 2 leytid naestu nott. Ja tessi ferd er vist ad kveldi komin og tvilik skemmtun og reynsla sem tetta hefur verid. Mun lengri ferd nuna en i fyrra og tvi allt odruvisi, ekki haegt ad bera taer saman og enda aetlum vid ekki ad reyna tad. Eg enn aftur maeli med svona pakka fyrir alla ta sem eru ordnir treyttir a sama gamla solarstrandapakkanum. Reyndar kaldhaednislegt ad segja tetta i ljosi tess hvar eg er nuna. Tessi ferd er buin ad vera yndisleg alla stadi og eins og eg segi ta se eg eftir tvi ad hafa ekki skrifad meira og oftar tvi ad tetta eru minningar sem mega ekki gleymast. Vid hofum to verid duglegir ad taka myndir og videocameran sem Gunnsa systir Heidars lanadi okkur hefur komid ad godum notum. Tokkum henni kaerlega fyrir tad.

 Tetta er liklega seinasta faersla sem eg skrifa her inna tessa sidu tar sem eg er ad flytja og eflaust seinasti pistill sidunnar tannig ad eg segi bara takk fyrir mig og okkur. Set inn nokkrar svarthvitar fra Athenu i lokin. Vid sjaumst svo bara heima a Islandi. Ciao!

Oaedri endinn a menningunni

A kaffihusi i Athenu

PP


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 16:56:32 / Pointarinn-Páll

Makedonia

Godan daginn, hafdi tad loksins i mer ad skrifa nidur nokkur fataekleg ord herna inn, eflaust einhverjir farnir ad orvaenta. Eins og kemur ad einhverju leyti fram a anselmo.wordpress.com tha er tessi verd buin ad standa algerlega undir vaetingum og buin ad vera frabaer i alla stadi. Stadirnir sem vid hofum heimsott og tad ogrynni af folki sem vid hofum hitt a ferdum okkar. Tetta er allt saman algerlega ogleymanlegt og setur margt heima i samhengi. Gud minn godur hvad vid erum heppin ad hafa faedst a Islandi.

Nuna erum vid bunir ad fara til 7 landa eda eg reyndar 8 tar sem eg laumadi mer adeins inni Albaniu i gaer thar sem eg hafdi litid ad gera og var med vegabrefid a mer. Thad er eiginlega ekkert eitt sem stendur uppur annad en tad ad tetta ferdalag herna um austurhluta Evropu er buid ad opna margar luktar hurdir i huga manns. Mikid af hlutum sem madur annad hvort vissi ekki af eda bara neitadi ad vidurkenna. T.d. ferdin til Auswitz i Pollandi tar sem vid saum bersynilega tann vidbjod sem menn geta virkilega framkvaemd. 6 milljonir mann tekin af lifi a 6 arum. Hrikalegt ad labba tarna um svaedid. Merkilegt var ad spa i saelfraedilega hluta tessara adgerda. Hvernig haegt se ad fa tessa menn, tessa eiginmenn og fedur til ad gera slika hluti og lata tha trua tvi ad teir seu ad gera rett. Allt fyrir fodurlandid. En jaeja thad er ogjorningur ad vera ad spa islikum hlutum nu svo longu eftir. En samt eru sumir hlutir sem mega ekki gleymast, eins og tessi gridarlegi mannlegi harmleikur.

Af okkur er samt allt gott ad fretta, erum i Skopje hofudborg Makedoniu og i tessum skrifudu ordum heyri eg i lestinni okkar renna inna brautarpallinn. Ferdinni er nu haldid til Thessaloniku i Grikklandi og tadan vonandi til Athenu tar sem vid aetlum ad kyla ut vombina og slappa af og skoda tha borg til hins ytrasta. Timinn her i Makedoniu er buinn ad vera frabaer og vid hofum hitt her mikid af godu folki undir stjorn hins magnada Jovans sem ad leyddi okkur um leyndardoma Skopje. For mek okkur a tridjudaginn a leik Makedoniu og Bulgariu i korfu og svo um kvoldid var flakkad um naeturlif Skopje (a tridjudegi) og djammad med totulidinu. Hittum makedonska frettamenn, fyrirsaetur og svo audvitad landslidid sjalft. Forum svo til Ohrid vatnsins sem er sumarleyfisstadur og tar var alveg hrikalegur hiti. Vid vorum allir vel steiktir ad taeplega 40 gradu heitri solinni. Allavega mjog godur og mjog skrytinn timi her, saum thad besta og lika thad versta sem landid hefur uppa ad bjoda. Eins og adur sagdi forum vid nu til Grikklands og tadan til Italiu og svo frakklands og spanar. En verd ad fara nuna er ordinn of seinn. Kem med meira seinna!

Heilsadu ollum heima sem tu heldur ad vilji muna eftir mer. (Megas)

Hordur


» 2 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 23:24:42 / Pointarinn-Páll

Off he goes (again)

Enn og aftur er það undir mér komið að halda þessu lifandi. Ekki komið almennilegur pistill í háa herrans tíð. Af okkur að frétta er það að þeir félagar Arnar og Bjarni eru nú staddir á Spáni þar sem þeir spándera um götur Benedorm með myndarlegt tan og einn cerveza líklegast ef ég þekki þá rétt. Guðni og Eiki eru einnig með þeim. Ég hef reyndar lítið heyrt af þeim en þeir eru vafalítið að skemmta sér vel.

 Á laugardaginn er svo komið að því sem ég er allavega búinn að vera að bíða eftir í allt sumar. Ég ásamt mínum allrabestu vinum Gumma og Heiðari mun skella mér í sandalana og smella á mig bakpokanum og halda útí heim. Við munum fljúga eldsnemma á laugardagsmorgninum til Frankfurt í Þýskalandi og framhaldið er nokkuð óráðið. Við erum engu síður komnir með svona grófa áætlun yfir þetta en af fenginni reynslu teljum við það best að bara spila þetta eftir eyranu og láta bara örlögin ráða því hvert við förum hverju sinni. En þessi grófa áætlun fyrir þessa 30 daga er nokkurn veginn svona fyrir þá sem áhuga hafa. Frá Frankfurt er líklegast að við höldum til Berlín og skoðum okkur vel um þar áður en við höldum til Prag þar sem ég og Guðmundur eyddum 2 yndislegum dögum í fyrra. En sú borg er ein af perlum austur-evrópu þó vissulega sé hún orðin rosalega mikil túristaborg. Eftir það höldum við í alvöruna. Ætlum til Krakow í Póllandi en þar rétt um klukkustund fyrir utan eru Auswitz útrýmingarbúðir nasista úr seinni heimstyrjöldinni. Það er eitthvað sem heillar mig við þennan stað. Einhver rómantík í allri eymdinni og öllum þeim hryllingi sem þarna fór fram. Eftir það förum við líklegast til Sarajevo í Bosníu og þar er eflaust einnig að finna mikið af gömlum stríðminjum en það er ekki langt síðan að þar geysaði stríð. Ekki meira en 15 ár síðan. Frá Sarajevo langar okkur að fara til Belgrad í Serbíu og síðan til Búkarest í Rúmeníu en það ræðst mikið eftir vegalengdunum og hversu langan tíma það tekur að fara þangað. Frá Rúmeníu munum við líklegast fara til Sofiu í Búlgaríu en ég hef heyrt bæði góða og slæma hluti um þá borg. Bróðir minn sem ég tel nokkuð áræðanlega heimild þegar kemur að vitneskju um austur-evrópu sagði mér að hún væri ekkert spes og miklu skemmtilegra væri að dvelja í búlgörsku sveitunum. Frá Búlgaríu er það svo Makedónía þar sem vitleysingarnir Jovan og Dimitar munu taka á móti okkur og sýna okkur það fallegasta sem landið hefur uppá að bjóða. Eftir nokkra daga hjá þeim höldum við suður til Grikkland eða nánar tiltekið Aþenu. Ég hlakka mjög mikið til þess en við misstum af henni í fyrra. Frá Aþenu siglum við til Ancona á Ítalíu og ferðumst upp vesturströnd Ítalíu og skoðum Strombóli, Salerno,Pompei, Vesúvíus og Napoli og svo Róm enn og aftur. Svo kannski sýna Heiðari Flórens og svo bara til Frakklands eða svona rétt á rivíeruna. Svo er það í lokin 4-5 dagar að ferðast um Spán. Reyna að ná því helsta. Barcelona, Madrid og  Valencia. Kíkja kannski til Andalúsíu og reyna að komast til Malaga og hitta á Pavel ef hann getur tekið á móti okkur. Svo bara til Alicante þaðan sem við fljúgum heim 3. september ef guð lofar.

Við ætlum að gera eina breytingu frá því í fyrra. Við eða allavega ég ætla að reyna að komast í tölvu og blogga eins mikið og ég get. Við munum eflaust allir halda dagbók sem er mikilvægt svo minningarnar gleymist ekki og ég mun kannski skrifa eitthvað úr henni hingað inn. Svo fékk ég hugmynd um daginn, er mikið að lesa fréttablaðið í vinnunni og sé alltaf einhverja vitleysinga skrifa pistla frá einhverri hringferð um landið og mér datt í hug hvort að ég gæti ekki skrifað pistil um ferðina okkar. Veit ekki hvernig það allt saman fer, ætla allavega að tala við ritstjórann. Fylgist kannski með fréttablaðinu, gæti með heppni læðst inn eins og einn pistill. Vonum það besta allavega.

Held þetta sé komið bara gott í bili. Þið hugsið bara hlýtt til okkar meðan við erum á þessu ferðalagi og biðjið fyrir því að við verðum ekki rændir af einhverjum melludólgum í Bosníu :)  Bið að heilsa.

PP


» 7 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 23:15:55 / Uptown Bill

Fótós..

ætli kjéppinn hafi ekki kastað inn nokkrum velvöldum myndum úr tvítugsafmælinu mínu og frá selfoss ferðinni ógurlegu, þar sem allt gat ské, GERÐIST...en okey mar..ég setti inn nokkrar myndir af okkur strákunum á góðum stundum, burt frá heimabyggð og áhyggjum.. http://spaces.msn.com/borgarnesbasket/ Arnar Þór Þorsteinsson

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 17:05:53 / Pointarinn-Páll

Ferð hinna ódauðlegu

Til hamingju með afmælið Gummi minn og vertu velkominn í hóp þeirra tvítugu! Biðst enn og aftur innilega afsökunar á því að hafa í örfáar mínútur á föstudagsmorguninn gleymt því hvaða dagur var. Væntumþykjan er ekkert minni þrátt fyrir það!  Ég hef skrifað upp ferðasöguna af afmælisferðinni sem farinn var á föstudaginn í skáldsagnalegum stíl svona að gamni mínu. Ég minni á að þetta er ferðin séð frá mínum bæjardyrum og atburðir gætu hafa átt sér stað án þess að ég hafi orðið vitni að þeim.

 

"Ferð hinna ódauðlegu"

 

 

Lagt í hann

Ný mið sögðu menn til að sannfæra sig.

Arnar lagði fram farartækið sem átti eftir að reynast mikill örlagavaldur í þessari ferð sem við héltum í þennan fallega föstudagseftirmiðdag. Heiðar og ég vorum farþegarnir. Grindavík var fyrsti stoppustaður þar sem Bjarni og afmælisbarnið voru að spila bikarleik í Guð-má-vita-hvaða úrslitum Bikarkeppninar. GG-Skallagrímur. Þeir unnu að lokum 1-2 við mikinn fögnuð þeirra 3 áhorfenda sem að lagt höfðu leið sína á þennan mikilvæga leik. Liðið var mjög svo þakklátt þeim mikla stuðning sem þeir fengu og þökkuðu vel fyrir sig.

Stytt sér leið um Krýsuvík

Þá var föruneytið allt saman komið í Grindavík og ferðin gat því hafist. Ég, Heiðar, Arnar, Bjarni og afmælisbarnið. Eftir talsverðar rökræður og meðfylgjandi yfirdrull ákváðum við að fara krýsuvíkurleiðina að þessu og taka leiðina um Krýsuvík. Sú tillaga féll í nokkuð grýttan jarðveg hjá sumum og átti þessi leið ekki eftir að vekja mikla lukku. Ef að undan eru skildir fyrstu 5 kílómetrarnir þar sem, að mig minnir, Heiðar lofsamaði fegurð strandlengjunnar. Við komumst þó á Selfoss á endanum og skildum Benzinn hans Arnars eftir við eitthvað ókunnugt hús og hoppuðum inní bíl hjá hinni yndisfríðu Hólmfríði sem að var svo góð að skutla okkur á ballið. Ekki nóg með það heldur tók hún það á sig að geyma lyklana hans Arnars svona svo þeir skyldu nú ekki týnast! Frábær hún Hófý. 

Ballið var í Njálsbúð sem er um klukktíma fyrir utan Selfoss og var hin fínasta skemmtun. Við vorum reyndar allir sammála um  það með allri virðingu fyrir kvenfólkinu á Suðurlandi þá erum við betur í stakk búnir hvað kvenfólk varðar hér á Vesturlandi. Þá meinum við útlitslega séð.

Farlausir í Njálsbúð

Eftir ballið þá enduðu ég og Arnar einhvern veginn farlausir á planinu fyrir utan Njálsbúð. Við fundum samt einhvern bíl með 4 stelpum sem að voru tilbúnar til að skutla okkur en þær gleymdu víst að tjá okkur það að enginn þeirra var í ökuhæfu ástandi. Við vorum því komnir aftur á byrjunarreit. Strákarnir voru farnir með Hófý aftur á gistiheimilið og flest allir bílar ef að lögreglan er undanskilinn á bak og burt. Var reyndar eitthvað fleira fólk þarna en einu samskiptin sem við áttum við það var þegar Arnar hótaði að berja einn þeirra eftir að hann sagði eitthvað um mömmu okkar. Ekki töff.

Too drunk to drive

Þegar hér er komið við sögu er klukkan rétt að slá 5 og við enn farlausir einhver staðar rétt við rætur Heklu. Við blésum hjá löggunni til að athuga hvort við gætum keyrt en það var víst eitthvað langt frá því. Þetta setti heimferð okkar óneitanlega í mikið uppnám því að bílinn sem að stelpurnar voru á var vitaskuld gagnslaus ef enginn var til að keyra hann.  Löggan tók okkur því bara uppá stöð með sér og bílinn sem að þessar stelpur voru á var tekinn með líka. Nú lágu örlög okkar hjá Lögreglunni á Hvolfsvelli.

Fastir á Hvolfsvelli

Klukkan var að verða sex og við enn strandaglópar á Lögreglustöðinni á Hvolsvelli farnir að þrá heita sæng og mjúkan kodda. Löggan vissi ekkert hvernig þeir áttu að koma okkur á Selfoss enda þurftu þeir á öllum sínum mönnum að halda á Hvolsvelli til að passa það að enginn íbúanna færi að ganga berserksgang í morgunkyrrðinni. Nú voru góð ráð dýr eða um það bil 7000kr. Lögreglan hringdi á taxa sem að keyrði okkur á Selfoss fyrir 7000. kr. Það var þungu fargi af okkur létt og gátum við ekki beðið eftir að komast uppá gistihemili til strákanna og sofa!

Svefnsstaðslausir á Selfossi

Það reyndist þó þrautin þyngri þar strákarnir svöruðu ekki í símann og allt læst. Við vorum því ekki lengur farlausir heldur vorum við orðnir svefnsstaðslausir! Við röltum yfir á Hótel Selfoss og sem betur fer var allt fullt hjá þeim því að nóttin hefði kostað okkur 20.000kr. Maðurinn í afgreiðslunni var svo indæll að hringja á leigubíl sem að skutlaði okkur uppí bæ á annað gistiheimili. Það gistiheimili reyndist vera fátt annað en röð af bjálkakofum. Við vöktum manninn sem að rak það og hann sagðist vera á leiðinni. Á meðan við biðum kepptist Arnar við að úthúða manninum og segja að hann væri ekkert nema hommadjöfull útaf því að hann var svo lengi. Ég var ekki lengi að stinga þessu aftur ofan í hann og sagði að þetta væri örruglega indælismaður sem hann og var. Lét okkur fá bjálkakofa á spottprís (7000kr!!!) og kom svo og breiddi yfir mig sængina áður en ég fór að sofa. Arnar sá að sér.

Við lögðumst því til rekkju kl hálfátta og sáum fram á að öll okkar vandræði væru úr sögunni. Það reyndist skammvinn sæla.

Þvílíkt vesen!

Við vöknuðum um hádegisbilið við símhringingu frá Gumma þar sem hann baðst innilegrar afsökunar á að hafa ekki vaknað fyrr um morguninn. Við sögðumst aldrei muna fyrirgefa honum! Hann tjáði okkur hins vegar mun verri fréttir og þær voru að Hófy hefði tapað lyklunum að Benzinum! Við vorum því aftur orðnir farlausir! Við röltum í rólegheitunum með strákunum aftur á gistiheimilið þeirra og á meðan skiptumst við á að velta fyrir okkur þeirri ógæfu sem að við vorum nú lendir í og einnig hvernig í ósköpunum við myndum redda þessu.  Arnar kveið fyrir símtalinu í pabba sinn þar sem þessi lykill var víst sá eini að Benzinum og eflaust myndi kosta morðfjár að smíðan annan eða skipta hreinlega um lás. Gummi reyndi að hughreysta hann með því að minna hann á þá staðreynd að þetta væri jú aðeins bíll og til væru mun meiri og alvarlegri vandamál í heiminum. Gummi var sagt að halda kjafti.

"Þetta reddast"

Við komum á gistiheimilið eftir langt labb í sumarhitanum á Selfossi. Bjarni lá þar og svaf sínu sælasta eftir erfitt gærkvöld. Raunir hans reyndust þó smámunalegar fyrir honum eftir að hann hafði hlýtt á frásögn okkar af gærkvöldinu. Við röltum og fengum okkur Subway í blíðunni og komum svo aftur uppá gistiheimili og  lögðum á ráðin yfir kaffibolla. Sá möguleiki var ræddur hvort við værum ekki bara staddir í einhvers konar faldri myndavél og hvort það væri ekki bara búið að fylgjast með okkur frá því við komum inní bæinn og fólkið sem við höfðum hitt aðeins leikarar sem að léku sitt hlutverk snilldarlega í þessum fáranlega farsa sem að virtist þó svo raunverulegur. Hófý kom og baðst afsökunar og eftirsjá hennar var greinilega hrein. Arnar efaðist þó eitthvað. Við gerðum dauðaleit í bílnum hennar en án árangurs. Hófý lagði þá til að hún skyldi renna aftur uppí Njálsbúð þar sem öll ósköpin höfðu farið fram og leita að lyklinum eftirsóknarverða. Heiðar í góðmennsku sinni bauðst til að fara með, Arnar í hræðslu sinni við pabba sinn bauð sig líka fram. En við hinir í eigingirni okkar sögðumst ætla að fara á barinn að horfa á fótboltaleik.

Allt er jú gott sem endar vel

Drullusokkarnir; ég, Gummi og Bjarni löbbuðum af stað yfir á barinn og töluðum um það og hlógum að því hvað þetta væri nú kómískt allt þetta sem að komið hefði fyrir okkur. Var þetta slæmt karma? Var BorgarnesBasket loksins að fá makleg málagjöld?  Í þeim töluðu orðum hringdi síminn hans Gumma og Heiðar var á hinni línunni. Þeir skiptust á orðum í smástund og Heiðar lagði svo á og Gummi var eins og spurningamerki í framan. Við röltum því áfram og komum að Pakkhúsinu sem er sportbar bæjarins. Þar stóðu Hófý, Arnar og Heiðar sem var með skítaglott prentað á grímuna á sér. Þau hlógu að okkur í smástund áður en við sögðum þeim að ropa orðunum útúr sér. Lykilinn var fundinn!!! Arnar sýndi okkur hann í hendi sér við mikil fagnaðaróp. .Heiðar hafði sökum hnýsni sinnar og forvitni gramsað undir sætinu í bílnum og rekist þar á lykilinn.Nú gátum við loksins komist héðan burt. Fyrst þurftum við þó að horfa á Liverpool vinna Enska Bikarinn og fá okkur að éta um leið. Ég bauð þeim Heiðari og Gumma á matinn og var það ein af mörgum rennslum sem að kortið mitt fékk að upplifa þessa helgi. Þvílík útgjöld. En mér var sama og vitna í lokin í orð sem að voru endurtekin oft þessa helgi; "Hei þetta er góð saga".

 

Hörður Unnsteinsson


» 17 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 13:26:46 / Chucks

Líður senn að leikslokum

Ég myndi segja að það væri komið kvöld í lífshlaupi Borgarnesbasket síðunnar, þar sem greinarnar sem fram eru látnar ná aldrei að toppa þessar gömlu klassísku sem skinu jafn skært og raun bar vitni. En það var í den. ég held við piltar séum vel yfir þetta bloggsamfélag hafnir og tími sé kominn til að kalla þetta gott, en við verðum að funda um þetta mál, bara í næsta tvítugsafmæli:)

ég fann í tölvunni minni þessa glæsilegu mynd af köppunum frá skólaferðalaginu í 10. bekk. ég held að það sé alveg ljóst að við óðum ekki í kvenfólki á þessum tíma:)

Svo fannst mér líka vert að benda á þessar ógurlegu brúnkubreytingar Harðar.

Ciao, Chucks


» 13 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 19:18:28 / Uptown Bill

Skemmtó til Grundó

þett hafði Hildigunnur að segja árið 2000....

Gummi....

Aldur: 14 ára árið 2000 (á afmæli í mai)
Heimili: Rétt fyrir ofan Borgarnes, á Borg.
Staður: Smá pínu labb frá Borgarnesi.
Uppáhalds matur: Örugglega allt sem að kjafti kemur.
Uppáhalds söngvari: Hljómsveitin Metallica
Uppáhalds söngkona: Örugglega einhver með flottan rass ;o)
Bestu vinkonur: Ég, Aðalbjörg, Bessý, Kristín Heba, Tinna og margar aðrar :o)
Bestu vinir: Bjarni, Gísli, Arnar, Dóri frændi hans og Elvar.
Er á móti: Gelgjum , A-gúrkum (maður á að segja gúrka!!!) og mörgu öðru!
Er ekki á móti: Enska boltanum, fótbolta sem hann spilar sjálfur, prjónaskap - hehe djók!!, þreki og fleiru skemmtilegu.
Mitt álit: Hann Gummi er algert æði, bestasti stráka vinur minn, sætur húmoristi sem kemur mér AALLLTTTAAAFFFF til að hlæja! Gummi er gaur og yndið mitt eina! Hann er EKKI hommalegur!

Bjarni...



Hann Bjarni er stórskemmtilegur strákur, besti vinur hans Gumma. Hann æfir örugglega allar íþróttir sem til eru og er rosa gæi og flottur. Hann er líka skemmtilegur og gáfaður. Hann er mjög mikið á móti monntnu fólki, og ýmsu fleiru. Hann er hinsvegar ekki síðri en Gummi vinur hans í rassa og brjósta-málunum. Hann elskar að sjá og fá að klípa í flotta rassa en gerir ekki eins mikið af því og Gummi, að minnsta kosti síðast þegar ég gerði könnun!  ;o)
Það vill svo skemmtilega til að ég á eina gamla mynd af Bjarna síðan sumarið '99, en hann er svo asnalegur eitthvað og ólíkur sjálfum sér á þeirri mynd þannig ég læt það alveg vera. En ef þú ert mjög mikil áhugamanneskja um þessa mynd, komdu þá bara í heimsókn til mín einhverntíman ;oÞ

Heiðar...

 

Jammz, Heiðar Lind er alger proffi (þetta er sko hrós!)og veit allt sem hægt er að vita örugglega, hann er að minnsta kosti miklu gáfaðari en ég (haha ég er eeeggóóóó) og líka ein stelpa sem er 20 ára og er proffi!! Alveg ótrúlegt! En hann er líka bíóstjóri og stjórnar bíói ásamt Gumma. Þessi mynd af Heiðari er eins og hinar, gömul, en hann er núna með öðruvísi klippingu og ekki svona stór augu, miklu myndarlegri!

Arnar Þór Þorsteinsson

 

 


 




» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13